Miðvikudagur 20. janúar 2016 kl. 16:57
Ágúst kominn á plakat
Ágúst Kristinn Eðvarðsson taekwondo kappinn efnilegi úr Keflavík og taekwondo maður ársins, prýðir nú plakat fyrir Reykjavíkurleikana (RIG). Leikarnir eru fjölgreina alþjóðamót sem verður haldið 22-31. janúar í Reykjavík. Ágúst sló í gegn á síðustu leikum og var valinn taekwondo keppandi leikanna.