Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Íþróttir

Agnar þjálfar kvennalið Njarðvíkur
Sunnudagur 8. maí 2016 kl. 12:37

Agnar þjálfar kvennalið Njarðvíkur

Heimamaðurinn Agnar Mar Gunnarsson hefur verið ráðinn þjálfari Njarðvíkur í meistaraflokki kvenna fyrir tímabilið 2016-2017 í körfuboltanum. Agnar er af góðu kunnur enda verið aðstoðarþjálfari kvennaliðsins undanfarin tímabil. Að auki hefur Agnar þjálfað fjölmarga yngri flokka félagsins við góðan orðstír í fjölmörg ár.

„Á liðnum árum hefur Agnar komið að mörgum verkum fyrir KKD UMFN, unnið löngum stundum sem sjálfboðaliði við hin ýmsu verkefni og sýnt félaginu hollustu og traust. Þetta eru gleðileg tíðindi fyrir félagið okkar enda hefur Agnar sannað með reynslu sinni og ekki síst áhuga og metnaði fyrir þjálfunarstörfum að hann er klár í þetta nýja verkefni,“ segir í tilkynningu frá Njarðvíkingum.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024