HSS
HSS

Íþróttir

Aftur sigra Keflvíkingar
Mánudagur 11. júlí 2011 kl. 22:04

Aftur sigra Keflvíkingar

Keflvíkingar sigruðu Víkinga á heimavelli sínum fyrr í kvöld með tveimur mörkum gegn einu. Guðjón Árni Antoníusson skoraði fyrir Keflvíkinga á 20. mínútu eftir að skot Arnórs Ingva Traustasonar hafnaði í samskeytunum og féll fyrir fætur Guðjóns.

Eftir rúmlega hálftíma leik skoraði Jóhann Birnir Guðmundsson með fallegu langskoti og Keflvíkingar virtust sigla lygnan sjó. Staðan var 2-0 í hálfleik og ekkert sem að benti til þess að Víkingar kæmust inn í leikinn þar sem þeir voru ekki að skapa sér mikið að tækifærum.

Það var svo þegar að 20 mínútur lifðu leiks að Viktor Jónsson, ungur framherji Víkinga minnkaði muninn í 2-1 eftir að Keflvíkingar höfðu aðeins slakað á og leikurinn opnaðist við þetta. Keflvíkingar með Harald Guðmundsson í broddi fylkingar hédu út og minnstu mátti muna að Hlmar Geir Eiðsson gerði út um leikinn fyrir Keflvíkinga þegar skammt var eftir en Magnús Þormar varði glæsilega frá honum.

Keflvíkingar hafa nú aðeins spyrnt sér frá botninum og eru komnir með 14 stig í 7. sæti.







Bílakjarninn
Bílakjarninn

Andri Steinn alblóðugur eftir samstuð í fyrra marki Keflavíkur

Jóhann Birnir skorar í kvöld


VF-Myndir: Guðjón Árni skorar á efstu myndinni og sjá má Andra Stein Birgisson liggja í grasinu en hann þufti að heimsækja Heilsugæsluna þar sem hann var saumaður saman