Áfrýjunardómstóllinn staðfestir dóm í „Guðjónsmáli“

Keflavík áfrýjaði dómnum og taldi að Guðjón hefði ekki haft áhrif á úrslit leiksins þar sem hann kom ekki inn á í leiknum og hefði því í raun ekki verið þátttakandi í leiknum.
Í dómnum segir ma.: Að mati dómsins telst leikmaður meðal þátttakenda í leik um leið og nafn hans hefur verið skráð á leikskýrslu burt séð frá því hvort hann fari inn á leikvöllinn eða ekki. Hann getur með nærveru sinn haft áhrif á leikinn en þennan skilning má m.a. draga af því að leikmaður sem er í leikbanni má ekki vera á varamannabekk meðan á leik stendur. Að þessu sögðu og með vísan til forsendna hins áfrýjaða dóms verður hann staðfestur.
Af vef KKI