Bygg
Bygg

Íþróttir

Afmælishátíð stangveiðimanna og formannsskipti hjá GS
Miðvikudagur 19. nóvember 2008 kl. 12:56

Afmælishátíð stangveiðimanna og formannsskipti hjá GS


Bílakjarninn
Bílakjarninn

Það er fjör og gróska í ýmsum félögum á Suðurnesjum um þessar mundir, bæði hjá stangveiðimönnum og kylfingum.
Stangveiðifélag Keflavíkur fagnar fimmtíu ára afmæli um þessar mundir og heldur veglega afmælisárshátíð nk. laugardag í KK salnum í Keflavík.
Á hátíðinni verður margt til skemmtunar sem og glæsilegt villibráðarhlaðborð að hætti Úlfars Finnbjörnssonar, hins kunna matreiðslumeistara.
Að venju verður sumarið gert upp en í félaginu eru margir snjallir stangveiðimenn. Þá verða skemmtiatriði og ræðumaður kvöldsins. Miðasala er í Sportbúð Óskars í síma 421-4922 fyrir kl.18 á daginn en í sal SVFK á kvöldin.
Á mánudag verður aðalfundur hjá Golfklúbbi Suðurnesja í golfskálanum í Leiru og hefst hann kl. 20. Núverandi formaður, Gunnar Þórarinsson mun ekki gefa kost á sér. Sigurður Garðarsson, verkfræðingur og framkvæmdastjóri Nesvalla hefur ákveðið að bjóða sig fram til formanns.

Sigurður Garðarsson er samnefndari fyrir þessa frétt því hann er bæði snjall stangveiðimaður og kylfingur.Hér er hann með glæsilegan tveggja ára lax úr Hofsá.