Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Íþróttir

Afi var ekkert sár
Fimmtudagur 20. mars 2008 kl. 10:35

Afi var ekkert sár

Jónas á rætur að rekja til Færeyja
 
Knattspyrnumaðurinn Jónas Guðni Sævarsson gerði sitt fyrsta landsliðsmark um helgina þegar Ísland tók á móti Færeyjum í Kórnum í Kópavogi. Leikurinn var fyrsti landsleikurinn sem fram hefur farið innandyra hér á landi. Jónas kom Íslandi í 1-0 skömmu fyrir hálfleik en Ísland hafði 3-0 sigur í leiknum og sagði Jónas að afi sinn, sem er Færeyingur, hefði verið sérlega stoltur af barnabarninu. Jónas gekk til liðs við KR frá Keflavík að lokinni síðustu leiktíð og kveðst ánægður með dvölina í Vesturbænum.
,,Ég skoraði nú með skalla um daginn fyrir KR en það var ekki á jafn stórum vettvangi,” sagði Jónas í samtali við Víkurfréttir en leikurinn gegn Færeyingum var hans fjórði landsleikur. ,,Það var ekki leiðinlegt að skora í leiknum þar sem afi minn er Færeyingur og ég ¼ Færeyingur. Afi var bara stoltur af stráknum og ekkert súr út af úrslitunum, hann heldur með mér,” sagði Jónas kátur í bragði en hann sagði leikinn gegn Færeyjum hafa verið erfiðan.
 
,,Það var erfitt að finna svæði til að fá boltann því varnarlega voru þeir mjög vel skipulagðir. Við settum á þá mark svo þeir þurftu að sækja og við nýttum okkur það mjög vel þegar svæðin þeirra opnuðust og kláruðum dæmið eftir frekar leiðinlegan fyrri hálfleik,” sagði Jónas sem mætti sínum gamla liðsfélaga Símun Samuelsen í leiknum. ,,Símun fór meiddur af velli og ég vona að þetta sé ekki alvarlegt hjá honum en hann óskaði mér til hamingju með markið,” sagði Jónas sem er sáttur í Vesturbænum.
,,Þetta er skemmtilegur hópur af leikmönnum hjá KR og við vorum að bæta við okkur góðum miðjumanni í Viktori Bjarka og það verður spennandi að sjá hvernig þessu verður stillt upp hjá okkur þar sem samkeppnin um stöður er gríðarleg,” sagði Jónas sem nú leikur fyrir lið þar sem væntingarnar eru ávallt miklar. Nú þegar KR hópurinn samanstendur af nafntoguðum leikmönnum finnur hann þá fyrir meiri pressu en hann hefur áður kynnst í boltanum?
 
,,Ég sem leikmaður hef ekki upplifað þessa pressu hérna og er engan veginn hræddur við að takast á við hana. Það er alltaf pressa í Vesturbænum og sama hvar okkur verður spáð í deildinni þá ætlar klúbburinn sér alltaf mikla hluti. Ég tel að þetta muni ekki hafa áhrif á okkur,” sagði Jónas sem í fyrsta sinn í sumar mun mæta á Keflavíkurvöll í deildarkeppninni í öðrum búningi en með K-merkið fyrir brjósti sér.
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024