Íþróttir

  • Áfall fyrir Samúel Kára
  • Áfall fyrir Samúel Kára
Mánudagur 18. júlí 2016 kl. 13:12

Áfall fyrir Samúel Kára

Hugsanlega með slitið krossband

Knattspyrnumaðurinn Samúel Kári Friðjónsson úr Keflavík er hugsanlega með slitið krossband í hné og verður því líklega frá keppni út árið. Samúel sem leikið hefur með Reading á Englandi undanfarin ár, samdi nýlega við norska félagið Vålerenga þar sem hann hittir fyrir Keflvíkinginn Elías Má Ómarsson. Samúel var við æfingar hjá félaginu þegar óhappið varð sl. föstudag.

Samúel er tvítugur miðjumaður sem hefur verið fastamaður í u21 liði Íslands að undanförnu.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024