Bygg
Bygg

Íþróttir

Af erlendum leikmönnum UMFG
Föstudagur 7. október 2005 kl. 13:24

Af erlendum leikmönnum UMFG

Líkur eru á því að Mathias Jack, Robert Niestroj, Mounir Anhandour leik með Landsbankadeildarliði Grindavíkur í knattspyrnu á næstu leiktíð. Þetta kemur fram á fotbolti.net.

Fotbolti.net segir einnig að Boban Savic hafi áhuga á því að vera áfram hjá Grindavík en meiri óvissa sé með hann þar sem Grindvíkingar eiga fyrir Helga Má Helgason og telja hann ekki síðri markmann.

Milan Stefán Jankovic, þjálfari Grindvíkinga, er staddur í Serbíu og Svartfjallalandi þar sem hann er í fríi en mun einnig skoða leikmenn þar í landi.

VF-mynd/ Mounir í leik með UMFG gegn Fylki í sumar.



Bílakjarninn
Bílakjarninn