Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Íþróttir

Æskudraumur að rætast
Jón Axel með bikarinn langþráða.
Laugardagur 1. mars 2014 kl. 11:09

Æskudraumur að rætast

-Paxel hver? Bjóðið velkominn Jaxel!

Jón Axel Guðmundsson vakti mikla athygli fyrir töffaralega innkomu í bikarúrslitaleik karla um síðastliðna helgi, þar sem Grindvíkingar fögnuðu sigri gegn ÍR. Grindvíkingurinn ungi var svellkaldur í fjórða leikhluta og setti niður öll fjögur skot sín, þar af tvær þriggja stiga körfur úr horninu.

Jón Axel hefur verið viðloðinn meistaraflokk í að verða þrjú ár þrátt fyrir að verða ekki 18 ára fyrr en síðar á árinu. Körfuboltaspekingar vita af honum enda er hann gríðarlegt efni. Eftir að Jón Axel steig á stóra sviðið á laugardaginn og sýndi hæfileika sína, vita eflaust fleiri hver þessi gutti er.

Hvað flaug í gegnum hausinn á bakverðinum unga í fjórða leikhluta? „Ég hugsaði bara um að gera mitt besta. Sverrir sagði að ef ég fengi opin skot þá ætti ég að taka þau. Ég fékk skotin og lét bara vaða.“ Jón Axel segir að það hafi verið draumi líkast að setja niður þessi stóru skot fyrir framan fulla stúku af glöðum Grindvíkingum. „Maður ímyndar sér að svona skot heppnist einn daginn þegar maður er að fíflast með félögum sínum. Svo gerðist þetta bara. Æskudraumur rætist.“ Jón Axel lék aðeins í 16 mínútur í leiknum en lét mikið að sér kveða, átti tvær stoðsendingar, stal tveimur boltum og hirti eitt frákast, auk þess að skora 10 stig.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

„Maður ímyndar sér að svona skot heppnist einn daginn þegar maður er að fíflast með félögum sínum. Svo gerðist þetta bara. Æskudraumur rætist.“

Jón Axel segir að hann hafi bætt sig töluvert sem leikmaður á undanförnu ári. Hann sé umvafinn reynsluboltum sem séu duglegir að leiðbeina honum til betri vegar. Hann er duglegur að æfa sig aukalega og stefnir hátt í boltanum. Stefnan er tekin til Bandaríkjanna, en ef allt gengur að óskum mun bakvörðurinn leika í framhaldsskóla í Philadelphiu næsta haust. Það er þegar komið í ferli en fyrst skal klára tímabilið með stæl á Íslandi. „Það væri ekki leiðinlegt að taka tvöfalt í ár og vinna Íslandsmeistaratitilinn þriðja árið í röð áður en ég fer til Bandaríkjanna,“ en Grindvíkingar hafa unnið titilinn undanfarin tvö ár. Einhver bið hafði þó verið eftir bikartitlinum sem síðast kom til Grindavíkur árið 2006.

Fékk gæsahúð þegar flautan gall

„Þetta er langþráður titill. Þegar um 30 sekúndur voru eftir af leiknum áttaði maður sig á því að þetta væri orðið að raunveruleika. Ég fékk þvílíka gæsahúð þegar fagnaðarlætin brutust úr, þetta var alveg geðveikt,“ rifjar Jón Axel upp. Faðir Jóns er goðsögn í Grindavík, Guðmundur Bragason, sem af mörgum er talinn besti miðherji sem Ísland hefur alið. Sjónvarpsmyndavélarnar voru duglegar að sýna þann gamla í stúkunni sem skiljanlega var að rifna úr stolti yfir syninum. „Hann sagði mér að hann væri ótrúlega stoltur af mér eftir leikinn. Sagði mér að ég hafi sýnt hvar í mér býr, að þetta væri bara spurning um að þora.“

Samkeppni er hörð í sterku Grindavíkurliði. Jón Axel leggur hart að sér til þess að fá sem flest tækifæri. Ef hann nýtir þau eins og hann gerði í Laugardalshöll þá eru honum allir vegir færir.
„Draumur minn er að komast í byrjunarliðið. Það er erfitt en maður verður að vinna sér inn mínútur,“ segir bakvörðurinn ungi. Draumurinn er á endanum að komast í háskólaboltann vestanhafs en það verður tíminn að leiða í ljós.


Nokkrar laufléttar spurningar

Hver er fyrirmynd þín í körfubolta?
Pabbi hefur alltaf verið fyrirmyndin mín en nú er hann hættur, þannig að Lebron James og Jón Arnór eru spilandi menn sem ég lít upp til núna.

Hvernig myndir þú lýsa þér sem leikmanni?
Mér finnst frekar gott að klappa boltanum, en ef menn eru opnir þá hika ég ekki við að gefa boltann. Ég á það til að vera frekar villtur leikmaður en annars er ég bara mjög mikill alhliða leikmaður, get skotið, gefið, drive-að, dripplað og póstað.

Eftirlætislið í NBA?
Miami og já, ég er einn af þessum Lebron James gæjum.

Eins og staðan er í dag, hvor vinnur í 1-á-1, þú eða pabbi gamli?
Sko, pabbi er ekki lengur jafn frár á fæti og hann var, þannig að ég hef hann. Hann er lúmskur í sókninni sá gamli en vörnin drepur hann alltaf.

Hver er furðufuglinn í Grindavíkurliðinu?
Það muna vera Ómar, en Óli Óla er ekki langt á eftir honum.

Hvernig er framtíðin hjá Grindavík?
Framtíðin í Grindavik er mjög björt og unglingastarfið er virkilega gott. Ég er sáttur með leikmenn sem eru að leggja mikið aukalega á sig með einstaklingsæfingum.

Áttu þér einhverjar hefðir varðandi körfuboltann. Hjátrú?
Ég er ekki með sérstakar hefðir fyrir utan það að ég er með lagalista sem heitir leikdagur sem ég hlusta á fyrir alla leiki. Lög sem peppa mig upp eru m.a. Ain't worried 'bout nothin' með French Montana og Lebron James með Yo gotti.

Hver eru markmið þín sem körfuboltamaður?
Það er helst að bæta mig með hverjum deginum. Ef maður gerir það mun maður ná langt!

Hvor er sætari, Bikarinn eða Íslandsmeistaratitilinn?
Ég myndi segja Íslandsmeistaratitillinn því maður er búinn að vera heila úrslitakeppni að berjast fyrir honum. Annars er svo lítill munur á þessu, bæði geðveik tilfinning en sá stóri er aðeins betri.

Áttu þér viðurnefni?
Páll Axel var alltaf kallaður Paxel og svo þegar ég mætti í meistaraflokk þá byrjaði hann bara að kalla mig Jaxel, þannig hefur það verið síðan.

Annar af tveimur þristum Jóns Axels í úrslitaleiknum á leiðinni ofan í. Að neðan má sjá kappann með boltann í sókn, fjöldi grindvískra áhagenda í baksýn. VF-myndir/PállOrri.