Ægir og Marín Evrópumeistarar í backhold
Ægir Már Baldvinsson úr Garðinum varð um helgina Evrópumeistari unglinga í backhold og í gouren í -57 kg unglinga, Ægir Már var jafnframt kjörinn glímumaður mótsins í flokki unglinga. Körfuboltakonan Marín Laufey Davíðsdóttir í Keflavíkurliðinu varð einnig Evrópumeistari í backhold og í 3.sæti í gouren í -90 kg flokki. Um er að ræða keltnesk fangbrögð sem sviðar nokkuð til íslenskrar glímu.
Njarðvíkingurinn Bjarni Darri Sigfússon varð í öðru sæti í gouren og í þriðja sæti í backhold í -68 kg flokki unglinga. Drengirnir stóðu sig frábærlega og vöktu athygli á mótinu sem fram fór í Frakklandi. Bjarni sigraði t.d. margfaldan Skotlandsmeistara í júdó í undanúrslitum í og andstæðingar Ægis sáu aldrei til sólar.