Mánudagur 18. febrúar 2002 kl. 13:51
Ægir Björnsson sigraði á pílumóti til minningar um móður sína

Það var mikil spenna á minningarmóti Kristínar Ingvarsdóttur í pílu sem haldið var í samkomuhúsinu í Sandgerði sl. laugardag. Ægir Björnsson sigraði í karlaflokki en Petrea Friðriksdóttir í kvennaflokki.Mikil stemmning var í Sandgerði og voru leikirnir allir spennandi og skemmtilegir. Það sem vakti athygli var að Ægir Björnsson sem sigraði í karlaflokki er sonur Kristínar sem mótið er haldið til minningar um og var þetta kærkominn sigur fyrir hann. Faðir Ægis og eiginmaður Kristínar, Björn Sveinsson lögreglumaður á Keflavíkurflugvelli , afhenti verðlaun.Hér eru nöfn þeirra sem unnu til verðlauna:
Konur:
1. sæti Petrea Friðriksdóttir
2.sæti María Ágústsdóttir
3. sæti Jóna Hólm
4. sæti Sigrún Ingólfsdóttir
Hæðsta útskot Petrea Friðriksd. - 116
Karlar:
1.sæti Ægir Björnsson
2.sæti Halldór Einarsson
3.sæti Jóhannes Harðarsson
4. sæti Magnús Garðarsson
Hæsta útskot Ævar Finnsson- 130