Bygg
Bygg

Íþróttir

Æfa júdó í Vogunum
Miðvikudagur 18. febrúar 2004 kl. 11:36

Æfa júdó í Vogunum

Magnús Hauksson kennir  júdó í Vogum á Vatnsleysuströnd og eru tæplega 30 manns sem æfa þessa íþrótt í Vogunum. Magnús er með svart belti í júdó og hefur þjálfað frá árinu 1996. Að sögn Magnúsar leggur hann áherslu á að kenna júdó sem keppnisíþrótt. „Júdóið byggist á að læra brögð, fléttur og lesa andstæðinginn. Ég hef aldrei lagt áherslu á sjálfsvarnarhlutann, en hann er að sjálfsögðu til staðar,“ segir Haukur. Dóttir Magnúsar, Katrín æfir hjá honum en hún er tvöfaldur íslandsmeistari unglinga í júdó. Það var tilkomumikið að sjá feðginin takast aðeins á í æfingasalnum í Vogum og það er greinilegt að iðkendurnir kunna að detta því Magnús skellti dóttur sinni í gólfið. Í framhaldinu náði hún að skella pabba sínum.

Hrafn Helgason er einn þeirra sem æfir júdó hjá Magnúsi, en hann hefur æft síðustu 7 ár. Í samtali við blaðamann sagði Magnús að hann ætlaði sér að gera Hrafn að Íslandsmeistara í júdó og var Hrafn ánægður með það markmið. „Ég æfi með það í huga,“ sagði Hrafn, en næsta stórmót er í apríl næstkomandi. Það er svo sannarlega tilefni til að fylgjast með þessum vösku júdóiðkendum í Vogunum.

Myndirnar: Það er greinilegt að Katrín dóttir Magnúsar þjálfara kann að detta, enda er hún tvöfaldur Íslandsmeistari unglinga í júdó. Hrafn Helgason stefnir að Íslandsmeistaratitlinum í júdó á árinu.

VF-ljósmyndir/Jóhannes Kr. Kristjánsson.

Bílakjarninn
Bílakjarninn