Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Íþróttir

Admir Kubat á leið í Grindavík frá Þrótti Vogum
Þriðjudagur 11. júlí 2017 kl. 16:27

Admir Kubat á leið í Grindavík frá Þrótti Vogum

Grindvíkingar eru að fá varnarmanninn Admir Kubat til liðs við sig frá Þrótti Vogum í 3. deildinni. Admir var valinn bestur hjá Víkingi Ólafsvík þegar liðið vann 1. deildina árið 2015.

Admir sleit krossband á undirbúningstímabilinu með Víkingi í fyrra en í vor gekk hann til liðs við Þrótt Vogum þar sem hann hefur spilað í 3. deildinni í sumar.                                                             
Hinn 28 ára gamli Admir hefur æft með Grindvíkingum að undanförnu og hann gengur til liðs við félagið þegar félagaskiptaglugginn opnar á laugardag.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Admir er frá Bosníu Hersegóvínu en hann á meðal annars að fylla skarð Jóns Ingasonar sem fer úr vörn Grindavíkur í ágúst þegar hann heldur út til Bandaríkjanna í nám.

Grindvíkingar eru jafnir Val á toppi Pepsi-deildarinnar en liðið mætir Fjölni á mánudaginn.

Þetta kemur fram á vef Fótbolta.net