Föstudagur 31. mars 2006 kl. 14:57
Aðalfundur Sportmanna á morgun

Aðalfundur SPORTMANNA verður haldinn í vallarhúsinu við Hringbraut laugardaginn 1. apríl n.k. og verður settur kl. 10.00. Á dagskrá fundarins eru venjuleg aðalfundarstörf en auk þess mun þjálfari meistaraflokks karla í knattspyrnu, Kristján Guðmundsson, mæta til að fræða fundarmenn um stöðu og framtíð knattspyrnumála hjá Íþrótta- og ungmennafélagi Keflavíkur að loknum aðalfundarstörfum.
Kaffi og meðlæti eru í boði og biður stjórnin félaga um að mæta vel og stundvíslega.
Mynd/Jón Örvar: Frá stofnfundi