Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Íþróttir

Aðalfundur Keflavíkur: Þórólfur hlaut starfsbikarinn
Sunnudagur 2. mars 2008 kl. 11:55

Aðalfundur Keflavíkur: Þórólfur hlaut starfsbikarinn

Aðalstjórn og formaður Keflavíkur var endurkjörin á aðalfundi félagsins sem fór fram á fimmtudag. Á fundinum voru veittar fjölmargar viðurkenningar.


Helga G. Guðjónsdóttir, formaður UMFÍ, sæmdi þau Níels Hermannsson úr sunddeild og Dagbjörtu Ýr Gylfadóttur starfsmerki UMFÍ.


Sigríður Jónsdóttir formaður fræðslusviðs ÍSÍ afhenti badminton-, fimleika-, sund-, knattspyrnu- og körfuknattleiksdeild félagsins viðurkenningu ÍSÍ sem fyrirmyndardeildir til næstu fjögurra ára. Þetta eru fyrstu deildir innan ÍSÍ sem hafa endurnýjað og uppfært handbókina um fyrirmyndarfélag/deild ÍSÍ.


Starfsbikar félagsins var veittur Þórólfi Þorsteinssyni.


Veitt voru starfsmerki fjögur bronsmerki fyrir fimm ára stjórnarsetu þeim Jóni S. Ólafssyni, Særúnu Guðjónsdóttur, Jónínu S. Helgadóttur og Ásgeiri Svan.


Tvö silfurmerki fyrir tíu ára stjórnarsetu þeim Birgir Má Bragasyni og Bjarney S. Snævarsdóttir.


Heiðursmerki félagsins voru veitt. Gullmerki fékk Hafsteinn Guðmundsson og silfurmerki þeir Ástráður Gunnarsson, Rúnar Arnarsson, Gísli Hlynur Jóhannsson, Hafsteinn Ingibergsson og Ragnar Örn Pétursson.


Helga Guðrún Guðjónsdóttir formaður UMFÍ átti afmæli þennan dag og í tilefni þess færði Einar Haraldsson Helgu blómvönd frá félaginu og viðstaddir sungu afmælissönginn.

Mynd/keflavik.is - Þórólfur Þorsteinsson, handhafi starfsbikarsins, ásamt Einari Haraldssyi, formanni Keflavíkur. Fleiri myndir með því að smella hér

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024