Bygg
Bygg

Íþróttir

Að duga eða drepast fyrir Keflvíkinga
Haraldur hefði viljað stig úr síðasta leik gegn Grindavík. Nú er hins vegar nauðsynlegt að fá þrjú stig til þess að halda í vonina um sæti í Pepsi-deildinni. VF mynd//Eyþór Sæm.
Þriðjudagur 16. ágúst 2016 kl. 13:27

Að duga eða drepast fyrir Keflvíkinga

„Við þurfum sigur,“ segir Haraldur fyrirliði Keflvíkinga fyrir stórleikinn gegn KA

Það verður barist á toppnum í 1. deild karla í fótbolta í kvöld, þegar fjögur efstu liðin mætast innbyrðis. Keflvíkingar fá topplið KA í heimsókn á Nettóvöllinn, en Keflvíkingar eru í þriðja sæti deildarinnar. Grindvíkingar fara í Breiðholtið og mæta þar Leiknismönnum, en liðin eru í öðru og fjórða sæti

Fyrri leik Keflavíkur og KA lauk með 1-1 jafntefli en Akureyringar jöfnuðu leikinn eftir umdeilda vítaspyrnu í uppbótartíma. Haraldur Guðmundsson Keflvíkingur man lítið eftir síðasta hluta þess leiks enda fékk hann höfuðhögg og við það brotnuðu fjórar tennur hjá varnarmanninum öfluga og hann rotaðist. „Mér finnst að við hefðum átt að fá þrjú stig þar en þeir fengu víti sem var alls ekki víti, þetta var bara góð tækling hjá Einari,“ segir fyrirliði Keflvíkinga.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Leikurinn í kvöld er gríðarlega mikilvægur hvað varðar framhaldið í toppbaráttunni. Vinni Keflvíkingar minnka þeir muninn í fjögur stig á KA, en tapi þeir fer munurinn í tíu stig. „Þetta er eiginlega duga eða drepast leikur fyrir okkur, við þurfum sigur,“ segir Haraldur. Hann er enn að súpa seyðið af árektrinum frá síðustu viðureign og hefur þurft að heimasækja tannlækninn ótal sinnum. Um óviljaverk var að ræða en þó var talsverður hiti í leiknum nyrðra líkt og gera má ráð fyrir í kvöld á Nettóvelli. Leikurinn hefst klukkan 18:30.