Aalesund hafnar tilboði í Harald
Keflvíski knattspyrnumaðurinn Haraldur Guðmundsson er ekki á leið til úkraínska liðsins Metalurg Donetsk á næstunni.
Lið hans, Aalesund, sem féll úr efstu deild í Noregi í haust, hafnaði tilboði Metalurg að því er fram kemur á mbl.is í dag. Tilboðið hljóðaði upp á 10-20 milljónir, en forráðamenn Aalesund segjast vilja mun hærra verð fyrir Harald.