Á toppnum eftir markasúpu
Njarðvíkingar lögðu Huginn 5-3 á Njarðvíkurvelli í kvöld í 2. deild karla í knattspyrnu. Eyþór Guðnason opnaði markareikning sinn hjá Njarðvíkingum í leiknum með því að gera tvö mörk. Njarðvíkingar eru enn á toppi 2. deildar með 21 stig þegar níu umferðum er lokið.
Strax á 3. mínútu dró til tíðinda þegar Kristinn Björnsson sendi boltann fram á Eyþór sem renndi boltanum framhjá markverði gestanna. Njarðvík 1-0 Huginn og Eyþór fagnaði vel sínu fyrsta marki í sumar.
Eftir mark heimamanna vöknuðu gestirnir og nokkuð jafnt var með liðunum fram að 23. mínútu þegar Guðni Erlendsson sendi boltann inn í teig gestanna og fann þar Eyþór áðurnefndan Guðnason sem kom boltanum í hægagangi yfir marklínuna. Njarðvík 2-0 Huginn.
Þegar nokkrar mínútur voru til hálfleiks gerðust Njarðvíkingar sekir um mistök fyrir framan sitt eigið mark sem lyktaði með stungusendingu inn fyrir vörnina þar sem Jeppe Opstrud minnkaði muninn í 2-1.
Áður en Valgeir Valgeirsson, dómari leiksins, gat flautað til leikhlés dæmdi hann víti á gestina þegar brotið var á Aroni Smárasyni í teignum. Albert Sævarsson, markvörður Njarðvíkinga, tók þá á rás fram völlinn og stillti boltanum á vítapunktinn og skoraði af öryggi í vinstra hornið. Ekki var annað að sjá en að Albert væri hin ágætasta vítaskytta því markvörður gestanna átti ekki möguleika í vítið. Njarðvík 3-1 Huginn.
Um það leiti sem Valgeir ætlaði að senda menn inn í hálfleik tóku gestirnir útspark sem hafnaði hjá Aroni Smárasyni. Aron rak boltann fram á við og skaut að marki og boltinn fór undir Jón Guðjónsson, markvörð Hugins, og staðan því 4-1 í leikhléi og allt stefndi í stórsigur heimamanna.
Þeir grænu töldu sig víst ekki þurfa að spila síðari hálfleikinn þar sem gestirnir náðu að minnka muninn í 4-3 og þar var Jeppe að verki í bæði skiptin og gerði því þrennu í leiknum.
Eftir mjög svo dapran síðari hálfleik heimamanna var ljóstýra við endann þegar Magnús Ólafsson, sem kom inn sem varamaður, sendi boltann fyrir markið af vinstri kanti og fann þar fyrir annan varamann, Mikel Herrero Idigoras, sem kom boltanum viðstöðulaust í markið og því lauk leik 5-3 fyrir Njarðvíkinga sem eru á toppi 2. deildar með 21 stig og mæta næst ÍR-ingum þann 17. júlí á Njarðvíkurvelli.
Eyþór var að vonum kampakátur með mörkin sín í kvöld. „Það var mjög sætt að hafa skorað og ég er bara léttur á því þar sem liðið er að spila vel,“ sagði Eyþór en var ekki sáttur með síðari hálfleikinn. „Þetta var mjög slappt hjá okkur í seinni hálfleik og við vorum ekki tilbúnir til þess að spila fótbolta og héldum að þetta væri búið. Vonandi höldum við bara áfram á sigurbraut því það er ekkert annað í boði en að fara upp í 1. deild,“ sagði Eyþór að lokum.
Staðan í deildinni
VF-myndir/ [email protected]