Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Íþróttir

A landslið karla klárt fyrir smáþjóðaleikana
Logi Gunnarsson er að venju í íslenska landsliðinu
Föstudagur 29. maí 2015 kl. 19:15

A landslið karla klárt fyrir smáþjóðaleikana

Logi og Elvar í hópnum

Craig Pedersen, landsliðsþjálfari Íslands í körfubolta hefur tilkynnt 12 manna hóp sinn sem mun taka þátt í smáþjóðaleikunum í byrjun júní. Tveir Suðurnesjamenn eru í hópnum að þessu sinni en það eru Njarðvíkingarnir Logi Gunnarsson og Elvar Friðriksson.

Grindvíkingurinn Ólafur Ólafsson verður með á æfingum hjá liðinu í kringum leikana eins og 3 aðrir leikmenn sem ekki hlutu náð fyrir augum landsliðsþjálfarans að þessu sinni.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Allan hópinn má sjá hér.