Á fjórða þúsund gestir í Reykjanesbæ um helgina
– Nettómótið í körfuknattleik verður haldið í Reykjanesbæ
Nettómótið í körfuknattleik verður haldið í Reykjanesbæ um næstu helgi. Mótið er fyrir stúlkur og drengi fædda eftir 2001 og mótið í ár er hið fjölmennasta frá upphafi en búist er við hátt í 1300 keppendum og talið er að um 2-3 fylgi hverju barni og því verða á fjórða þúsund gestir í bænum.
Mótið fer fram í öllum íþróttasölum bæjarins og á þessu móti bætist við einn nýr keppnisstaður sem er íþróttasalurinn við Háaleitisskóla á Ásbrú.
Mótið hefst á laugardaginn klukkan átta um morguninn og lýkur með verðlaunaafhendingu klukkan 15 á sunnudaginn. Gist er í öllum skólum bæjarins og ýmislegt er í boði, bæði fyrir keppendur og fylgdarfólk í bæjarfélaginu. Þar má m.a. nefna, Skessuhellir, Víkingaheima, bíósýningar, ungmennagarðurinn og leiksvæði í Reykjaneshöll. Kvöldvaka verður á Sunnubraut á laugardagskvöldinu.
Það eru körfuknattleiksdeildirnar í Keflavík og Njarðvík sem sameiginlega standa að Nettómótinu, einu fjölmennasta íþróttamóti sem haldið er, en fyrsta mótið sem þá hét Kókómjólkur-mótið var haldið 1993.