A. Pálsson verður aðalstyrktaraðli yngri flokka í Sandgerði
A. Pálsson og hefur skrifað undir tveggja ára styrktarsamning við yngri flokkana hjá knattspyrnudeild Reynis og verður á samningstímanum aðalstyrktaraðili yngri flokka starfsins í Sandgerði. Af þessu tilefni gáfu A. Pálsson og KSD Reynis öllum nemendum í 1. og 2. bekk í Sandgerðisskóla fótbolta.
KSD Reynis bindur miklar vonir við samstarfið við A. Pálsson og vill knattspyrnudeildin koma því á framfæri við foreldra barna í 1. og 2. bekk Sandgerðisskóla að börnin þurfa ekki að greiða æfingagjöld í sumar.
VF-mynd/ www.reynir.is – Frá undirritun samninga í síðustu viku.