HSS
HSS

Íþróttir

8-liða úrslitum lýkur í dag
Sunnudagur 13. janúar 2008 kl. 15:06

8-liða úrslitum lýkur í dag

Keflavík, Grindavík og Fjölnir tryggðu sig inn í 8 liða úrslit Lýsingarbikarsins í körfuknattleik í gær. Keflavíkurkonur gerðu góða ferð í Vodafonehöllina og náðu fram hefndum eftir ósigurinn í deildinni þar fyrr í vikunni. Grindavíkurkonur höfðu svo frækinn sigur á KR í Röstinni í gær og karlalið Fjölnis átti ekki í neinu basli með 1. deildarlið Þórs úr Þorlákshöfn. Í dag lýkur svo 8 liða úrslitum og þá verður ljóst hvaða lið í karla- og kvennaflokki munu leika til undanúrslita.

 

Í Stykkishólmi verða Keflvíkingar í heimsókn en þessi lið hafa leikið marga fjöruga leikina undanfarin ár, nú síðast á föstudag í Iceland Express deildinni í Keflavík þar sem Keflavík vann með 3 stigum, 98-95.

 

Í Njarðvík verður svo enn einn stórleikurinn þegar liðin sem léku til úrslita um Íslandsbikarinn í fyrra, Njarðvík og KR, mætast. Liðin mættust í deildinni í vetur í DHL höllinni þar sem Helgi Már Magnússon skoraði ævintýralega þriggja stiga körfu í lok leiksins og tryggði KR sigur. Rimmur Njarðvíkur og KR hafa í marga áratugi boðið upp á líf og fjör og ljóst að áhorfendur fá eitthvað fyrir aurinn.

 

Í Borgarnesi tekur Skallagrímur á móti bikarmeisturum ÍR en Skallagrímsmenn hafa verið á góðu skriði undanfarið á meðan ÍR ingar töpuðu á Sauðárkróki á föstudag.

 

En það er ekki bara leikið í Lýsingarbikar karla, konurnar etja kappi líka. Í Stykkishólmi tekur efsta lið 1. deildar, Snæfell, á móti neðsta liði Iceland Express deildarinnar, Fjölni. Snæfellsstúlkur hafa leikið mjög vel í vetur og eru eflaust fullar sjálfstrausts á meðan Grafarvogsstúlkurnar hafa þurft að lúta í lægra hald oft í vetur. Það verður þó eflaust gaman fyrir aðstoðarþjálfara Fjölnis, Ágúst Jensson, að mæta í sinn gamla heimabæ með lið sitt og honum myndi eflaust ekki leiðast að taka sigurinn með sér heim.

 

Seinasti leikur 8 liða úrslita Lýsingarbikars kvenna er leikur bikarmeistara Hauka og Hamars. Liðin mættust í Hveragerði í vikunni þar sem Haukar fóru með nauman sigur. Haukastúlkur hafa ekki verið sannfærandi í vetur en Hamarsstúlkur hafa verið í botnbaráttunni þó þær hafi einstaka sinnum bitið frá sér í baráttunni við toppliðin.

 

Þá mætast Þór Akureyri og Grindavík í Iceland Express deild karla kl. 19:15 á Akureyri en leik liðanna var frestað í desember sökum veðurs. Igor Beljanski verður ekki með Grindvíkingum í kvöld sökum meiðsla sem hann hlaut í upphitun á viðureign KR og Grindavíkur á dögunum.

 

17:00 - Lýsingarbikarinn

 

Snæfell-Fjölnir, Stykkishólmur, kk

 

19:15 - Lýsingarbikarinn

 

Haukar-Hamar, Ásvellir, kvk

 

Skallagrímur-ÍR, Borgarnes, kk

 

Snæfell-Keflavík, Stykkishólmur, kk

 

Njarðvík-KR, Njarðvík,kk

 

19:15 - Iceland Express deildin, kk

 

Þór Akureyri-Grindavík, Akureyri,kk

Bílakjarninn
Bílakjarninn