Fimmtudagur 10. desember 2015 kl. 14:47
7-3 tap í fyrsta leik Þorvaldar
Keflvíkingar léku sinn fyrsta knattspyrnuleik undir stjórn Þorvaldar Örlygssonar í gær, þegar Valsmenn mættu í Reykjaneshöllina. Keflvíkingar fengu nettan skell í þessum æfingaleik en þeir töpuðu leiknum 7-3. Magnús Matthíasson skoraði tvö marka Keflvíkinga og Ásmundur Rúnarsson eitt.