6 lið frá Suðurnesjum í úrslitum bikars
Suðurnesjamenn hafa verið fremstir í flokki í körfubolta síðustu tugi ára. Því er einna helst að þakka frábæru unglingastarfsemi í körfunni hér á Suðurnesjum. Við sjáum ungt fólk stíga upp ár eftir ár og verða mikilvægir hlekkir í meistaraflokkum liðanna. Um helgina er merkur áfangi í unglingastarfsemi körfunnar á Suðurnesjum þegar 6 lið spila hreina úrslitaleiki í bikarkeppni sinna flokka.
Herlegheitin byrja á laugardaginn næstkomandi þegar Keflavík í 9. flokki karla, Njarðvík í 11. flokki karla og Grindavík í 10. flokki kvenna spila til úrslita um þennan eftirsótta bikar í sínum flokki. Á sunnudaginn verða svo aðrir þrír úrslitaleikir þegar Grindavík í 9. flokki kvenna, Njarðvík í 10. flokki karla og Keflavík í unglingaflokki kvenna reyna að koma bikörum til Suðurnesja. Davíð Friðriksson þjálfar 9. og 10. flokk kvenna og er að vonum ánægður og stoltur með stelpurnar. Hann segir að þær búi yfir miklum metnaði og mæti stíft á æfingar. „Ég er með 20 stelpur á hverri æfingu í þessum flokkum og það kemst enginn flokkur í líkingu við þennan fjölda sem ég er með á æfingum af öllum þessum liðum sem ég hef spilað við og það er ótrúleg uppbygging í stúlknaflokkunum hérna í Grindavík og margar farnar að banka uppá hjá meistaraflokki og eru fimm í tólf manna hóp í unglingalandsliðum“. Hann er bjartsýnn fyrir helgina og segir að stelpurnar eiga góða möguleika landa titlum. Leikirnir verða leiknir í ÍM í Grafarvogi og eru Suðurnesjamenn hvattir til að koma og fylgjast með framtíðar leikmönnum sinna liða.
Mynd: Grindavík í 9.flokk kvenna á góðri stund í fyrra.