56 stiga sigur!
Keflavík átti ekki í vandræðum með Snæfell þegar liðin mættust í gær í Iceland Expressdeild kvenna í körfuknattleik. Þegar yfir lauk höfðu heimastúlkur sigrað með 56 stiga mun, en lokatölur leiksins voru 118-62.
Gestirnir byrjuðu ágætlega og staðan eftir fyrsta leikhluta var 26-21 fyrir Keflavík. Í öðrum leikhluta skildu hins vegar leiðir þegar lið Keflavíkur fór hamförum og skoraði 36 stig gegn 9. Keflavíkurstúlkur héldu uppteknum hætti í seinni hálfleik og fengu yngri og óreyndari leikmenn að spreyta sig.
Pálína Gunnlaugsdóttir fór hamförum í leiknum og skoraði 35 stig, tók 6 fráköst og gaf 7 stoðsendingar. Jacqueline Adamshick gerði 18 stig og tók 15 fráköst. Birna Valgarðsdóttir skoraði 19 stig.
Mynd - Pálína Gunnlaugsdóttir skoraði 35 stig fyrir Keflavík.