HSS
HSS

Íþróttir

50 þúsund Callaway boltar fóru í sjóinn út af Reykjanesi
Föstudagur 16. mars 2007 kl. 12:57

50 þúsund Callaway boltar fóru í sjóinn út af Reykjanesi

Greint er frá því á www.kylfingur.is í dag að einn af þeim fimm gámunum sem fóru í hafið í fyrrakvöld út af  Garðskagavita á Reykjanesi, af skipi Atlantsskipa, hafði að geyma  50.000 Callaway æfingabolta. Boltarnir áttu að fara í nýju boltavélina sem verið er að setja upp á æfingasvæði GK í Hafnarfirði. Tveir gámar, af þessum fimm sem fóru í sjóinn, náðust í land í gær, en golfboltarnir voru ekki í þeim.

Ólafur Þór Ágústsson, vallarstjóri á Hvaleyrinni, sagði í samtali við Kylfing.is að nú væri leitað leiða til að fá nýja bolta til landsins með flugi því það tæki að minnsta kosti þrjár vikur að fá nýja sendingu með skipi og það væri einfaldlega of langur tími. 

Reiknað er með að nýja æfingasvæðið og boltavélin verði opnuð hjá GK um mánaðarmótin, eða eftir tvær vikur.

Menn ættu kannski að ganga fjörur fyrir neðan Hólmsvöll í Leiru þegar fer að vora og fá sér ókeypis golfbolta fyrir sumarið! Veiðisvæðið Bugtin við Hólmsvöll hefur í gegnum tíðina haft það orð á sér að þar væri að finna ýmiskonar varning sem hent hefði verið útbyrðis af skipum hér í eina tíð. Því gæti vel verið að kafarar á Suðurnesjum myndu vinna sér inn smá aukapening í sumar með því að selja vatnabolta.

 

www.kylfingur.is

 

Mynd: 50 þúsund svona stykki er að finna skammt frá Hólmsvelli í Leiru, reyndar á hafsbotni.

Bílakjarninn
Bílakjarninn