HSS
HSS

Íþróttir

5 Íslandsmet og 4 frá ÍRB í sundlandslið Íslands
Kristófer, Þröstur, Sunneva Dögg og Karen Mist.
Mánudagur 8. júní 2015 kl. 09:32

5 Íslandsmet og 4 frá ÍRB í sundlandslið Íslands

- á Smáþjóðaleikunum.

Fjórir sundmenn frá ÍRB voru valdir í sundlandslið Íslands á Smáþjóðaleikunum: Kristófer, Þröstur, Sunneva Dögg og Karen Mist. Keppendur ÍRB voru þeir yngstu í liðinu og var Karen Mist, 15 ára, sú yngsta. 

Þá voru fimm Íslandsmet sett á Smáþjóðaleikunum. Hrafnhildur Lúthersdóttir er í frábæru formi og sló fjögur met og sum þeirra með mjög afgerandi hætti. Þau voru í 100m og 200m bringusundi og í 200m og 400m fjórsundi. Anton Sveinn McKee sló einnig Íslandsmet í 200 fjórsundi. 

Bílakjarninn
Bílakjarninn

 

Sunneva Dögg Friðriksdóttir bætti tíma sinn í 200 m flugsundi um 5 sekúndur og varð í 5. sæti. Hún synti á 2. og 3. besta tíma sínum í 400 m skriðsundi og varð 4. í úrslitunum. Í 800 m skriðsundi var hún á næst besta tíma sínum og varð einnig í fjórða sæti. Karen Mist Arngeirsdóttir synti mjög gott 200 m bringusund og vann bronsverðlaun. Þröstur Bjarnason synti á 3. besta tíma sínum í 1500 m skriðsundi og varð í fjórða sæti. Kristófer Sigurðsson synti á næstbesta tíma sínum í 400 m skriðsundi í úrslitunum. Hann synti fyrsta sprett í 4x200 m boðsundi og synti þar á 6. besta tíma sínum, boðsundliðið vann silfurverðlaun.

Stór hópur foreldra tók mikinn þátt í mótinu sem sjálfboðaliðar. Frá þeim hefur heyrst að upplifunin hafi verið mjög jákvæð og að fólk hafi notið þess að vera á mótinu.