40 stiga sigur Keflvíkinga
Íslands- og bikarmeistarar Keflavíkur unnu sinn fyrsta leik á tímabilinu í Iceland Express deild kvenna í kvöld, og það með stæl. Þær gjörsigruðu Hamarsstúlkur með 40 stiga mun, 105-65 þar sem Pálína Gunnlaugsdóttir átti stórleik, hún var með 32 stig og 4 stoðsendingar í leiknum. Hjá Hamri var Samantha Murphy með 26 stig og 7 stolna bolta.
VF-Myndir/Eyþór Sæmunds: Að ofan er Pálína Gunnlaugsdóttir að skora tvö af stigum sínum í kvöld og að neðan sækir hin unga og efnilega Sara Rún Hinriksdóttir á vörn Hamars.