4. flokkur Keflavíkur Íslandsmeistari
Keflavík varð Íslandsmeistari í knattspyrnu um síðustu helgi þegar 4. flokkur pilta kom sá og sigraði í keppni 7 manna liða. Í sumar hefur liðið tekið þátt í þeirri keppni samhliða hinum hefðbundna Íslandsmóti 11 manna liða. Sannarlega glæsilegur árangur hjá þessum ungu Keflvíkingum en þjálfarar liðsins eru Zoran Daníel Ljubibic og Haukur Benediktsson.
VF-MYND/Hilmar Bragi