Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Íþróttir

Þriðjudagur 19. mars 2002 kl. 15:20

2 fyrir 1 og frítt fyrir skólabörn - Keflavík-Haukar

Keflvíkingar spila við Hauka í kvöld, þriðja og síðasta leik í 8-liða úrslitum Epson-deildarinnar í körfuknattleik. Nú er að duga eða drepast fyrir Keflvíkinga því ef þeir ætla sér lengra í keppninni verða þeir að sigra í leiknum. Stjórn liðsins vill leggja sitt af mörkum til að fylla húsið og af því tilefni verður bæjarbúum gert gott tilboð á leikinn.



Um er að ræða fjölskyldutilboð, nánar tiltekið 2 fyrir 1, þ.e. ef tveir fullorðnir mæta á leikinn, þurfa þeir aðeins að greiða fyrir einn. Þar utan er grunnskólabörnum í fylgd með fullorðnum boðið frítt á leikinn.
Með þessu móti þarf fjölskylda aðeins að greiða 800 kr. í aðgangseyri, sama hvað hún er stór! Þetta kemur fram á heimasíðu Keflvíkinga
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024