HSS
HSS

Íþróttir

2. flokkur Keflvíkinga Íslandsmeistarar
Sunnudagur 22. ágúst 2004 kl. 14:47

2. flokkur Keflvíkinga Íslandsmeistarar

2. flokkur kvenna frá Keflavík eru Íslandsmeistarar í flokki 7 manna liða.

Þær tryggðu sér titilinn í morgun með sigri á Leiftri, 3-2, í úrslitakeppninni sem fór fram á Fylkisvelli.

Þær stóðu sig með miklum ágætum í sumar og unnu alla leiki sína í riðlakeppninni fyrir utan þann síðasta og unnu svo alla leiki sína í úrslitakeppninni.

Þær verða hylltar í hálfleik á leik Keflavíkur og ÍBV sem hefst kl. 18 í kvöld.
VF-mynd/Þorgils Jónsson
Bílakjarninn
Bílakjarninn