HSS
HSS

Íþróttir

2. flokkur í undanúrslitum bikarsins
Þriðjudagur 22. júlí 2014 kl. 09:31

2. flokkur í undanúrslitum bikarsins

Strákarnir í knattspyrnuliði 2. flokks Keflavíkur/Njarðvíkur eru komnir í undanúrslit bikarkeppninnar.  Þetta varð ljóst eftir góðan 2-0 sigur á KA á Akureyri.  Framlengja þurfti leikinn en Jón Tómas Rúnarsson og Leonard Sigurðsson skoruðu í framlengingunni og eru Suðurnesjamenn þar með komnir í undanúrslit sem fram fara í seinni hluta ágúst.

Liðið hefur reyndar verið með annan fótinn á Akureyri en strákarnir léku þrjá leiki þar um síðustu helgi.  A-liðið vann KA örugglega 4-1 en Ari Steinn Guðmundsson gerði tvö mörk í þeim leik og Árni Gunnar Þorsteinsson og Óðinn Jóhannsson sitt markið hvor. Hjá B-liðunum höfðu Keflvíkingar/Njarðvíkingar einnig betur en sá leikur fór 3-2.  Þorsteinn Þengill Helgason og Markús Már Magnússon skoruðu í leiknum en einnig gerðu KA-menn sjálfsmark.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Daginn eftir lék A-liðið gegn Þór og tapaði 3-2 þar sem sigurmark heimamanna kom í uppbótartíma. Eiður Snær Unnarsson og Anton Freyr Hauksson gerðu mörk Keflavíkur/Njarðvíkur í leiknum.

Næstu mótherjar Keflvíkinga/Njarðvíkinga verða svo enn og aftur KA-drengir en A- og B-lið félaganna mætast laugardaginn 26. júlí og að þessu sinni á heimavelli Suðurnesjapilta.