Bygg
Bygg

Íþróttir

183 Íslandsmeistarar í Reykjanesbæ 2010
Föstudagur 31. desember 2010 kl. 15:14

183 Íslandsmeistarar í Reykjanesbæ 2010

Fjöldi einstaklinga sem urðu Íslandsmeistara innan aðildarfélag ÍRB voru 183. Íslandsmeistaratitlar unnust í 10 íþróttagreinum hjá 7 íþróttarfélögum. Hjá Njarðvík áttu þrjár deildir Íslandsmeistarar og hjá Keflavík áttu fimm deildir Íslandsmeistara.

Bílakjarninn
Bílakjarninn


Það má því e.t.v. segja að 13 deildir og/eða félög hafi átt Íslandsmeistara í ár. Flestir urðu Íslandsmeistarar í körfuknattleik eða 78, og í knattspyrnu urðu 42 einstaklingar Íslandsmeistarar.


Sú deild eða félag sem átti flesta Íslandsmeistara var körfuknattleiksdeild Keflavíkur, en þar urðu 62 einstaklingar Íslandsmeistarar.


Skipting á milli kynja er þannig að af 183 Íslandsmeisturum voru konur/stúkur 97 en karlar/drengir 86.

HÉR MÁ SKOÐA HÓPMYNDINA STÓRA