14 landsliðsmenn frá Suðurnesjum
Körfuknattleiksþjálfararnir kunnu, þeir Jón Halldór Eðvaldsson og Einar Árni Jóhannsson hafa valið landsliðshópa sína í U-15 drengja og stúlkna sem taka þátt í alþjóðlegu móti nú í byrjun júní. Að vanda eru margir Suðurnesjamenn í hópunum bæði hjá strákunum og stelpunum. Ísland hefur tekið þátt í mótinu undanfarin ár með góðum árangri, en U15 er fyrsta landslið sem fer á mót erlendis hjá KKÍ.
U15 ára landslið Íslands eru skipað eftitöldum leikmönnum:
Dagný Lísa Davíðsdóttir · Hamar
Elfa Falsdóttir · Keflavík
Eva Kristjánsdóttir · KFÍ
Harpa Hrund Einarsdóttir · Njarðvík
Ingibjörg Sigurðadóttir · Grindavík
Irena Sól Jónsdóttir · Keflavík
Karen Dögg Vilhjálmsdóttir · Njarðvík
Kristrún Björgvinsdóttir · Keflavík
Laufey Rún Harðardóttir · Keflavík
Thelma Dís Ágústsdóttir · Keflavík
Þóra Kristín Jónsdóttir · Haukar
Þuríður Birna Björnsdóttir · Njarðvík
Þjálfari: Jón Halldór Eðvaldsson
Aðstoðarþjálfari: Tilkynnt á næstunni
Adam Smári Ólafsson · KR
Aðalsteinn Már Pétursson · UMFG
Árni Elmar Hrafnsson · Fjölnir
Bergþór Ægir Ríkharðsson · Fjölnir
Birgir Björn Magnússon · Haukar
Halldór Garðar Hermannsson · Þór Þ.
Hilmir Kristjánsson · UMFG
Kári Jónsson · Haukar
Kristinn Pálsson · Njarðvík
Kristófer Rúnar Ólafsson · UMFG
Ragnar Helgi Friðriksson · Njarðvík
Ragnar Jósef Ragnarsson · KR
Þjálfari: Einar Árni Jóhannsson
Aðst.þj: Finnur Freyr Stefánsson
VF-mynd: Kristinn Pálsson, sonur hins margreynda Páls Kristinssonar er einn af efnulegum Suðurnesjamönnum sem eru í landsliðshóp.