13 stig hjá Loga í tapleik
Logi Gunnarsson, frá Njarðvík, gerði 13 stig í gærkvöldi er lið hans Bayreuth tapaði gegn Nördlingen 88-79 í þýsku 2. deildinni í körfuknattleik. Logi hefur verið að finna sig vel með Bayreuth og er með stigahæstu mönnum liðsins það sem af er leiktíðinni.
Mynd: http://www.bbc-bayreuth.de/