13 ára í meistaraflokki Grindavíkur
Grindavíkurstelpur burstuðu Hamar í Lengjubikar kvenna í körfubolta í gærkvöldi með hátt í 40 stiga mun. Einn leikmaður vakti sérstaka athugli í leiknum en það var hin 13 ára gamla Hrund Skúladóttir leikmaður Grindavíkur.
Hrund er talin mjög efnileg, en þess má geta að hún er systir Petrúnellu Skúladóttur sem hefur átt farsælan feril með Grindavík og Njarðvík, auk þess að leika með landsliði Íslands. Hrund skoraði tvö stig í leiknum en hún hefur æft með Grindavíkurliðinu á undirbúningstímabilinu og staðið sig vel.
Myndin var tekin af Hrund í leik liðanna í Hveragerði í gær en frá þessu er greint á Grindavík.is.