Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Íþróttir

1000 börn á Nettómóti í Reykjanesbæ
Laugardagur 6. mars 2010 kl. 13:09

1000 börn á Nettómóti í Reykjanesbæ

Metþáttaka er á Nettómótinu sem haldið verður í 20 sinn í Reykjanesbæ um helgina. Alls hafa um 1000 þátttakendur skráð sig til leiks eða 148 keppnislið frá 22 félögum.


Liðin sem boðað hafa þátttöku sína eru:
Ármann, Breiðablik, Fjölnir, FSU, Grindavík, Haukar, Hekla, Hörður, Höttur, ÍA, ÍR, Keflavík, KFÍ, Kormákur, KR, Njarðvík, Reykdælir, Snæfell, Stjarnan, Tindastóll, Valur og Þór Akureyri.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024


Mótið fer fram í Heiðarskóla, Njarðvíkurskóla, Akurskóla, Íþróttahúsinu við sunnubraut og íþróttahúsinu á Ásbrú og kemur fjöldi sjálfboðaliða að skipulagningu þess sem er í höndum barna- og unglingaráðs köfuknattleiksdeilda Keflavíkur og Njarðvíkur. Auk leikja er boðið upp á ýmis konar afþreyingu og má þar nefna pizzuveislu, bíó, sund, kvöldvöku, stanslaust fjör í Reykjaneshöllinni og heimsókn til Skessunnar í hellinum auk kvöldvöku. Foreldar og keppendur gista í grunnskólum Reykjanesbæjar þar sem boðið verður upp á morgunmat, hádegismat og kvöldverð keppnisdagana.


Umgjörð mótsins er glæsileg en markmið þess er að börn og foreldrar haldi heim sælir og glaði rmeð góðar minningar.


Mótið hófst kl. 8:00 í morgun með móttöku liða í Holtaskóla en kl. 9:00 hófust fyrstu leikir á öllum völlum.


Tenglar: www.nettomot.blog.is