HSS
HSS

Íþróttir

Mánudagur 8. desember 2003 kl. 22:28

1. deild kvenna: Keflavík tapar í toppslag

ÍS lagði Keflavík í leik kvöldsins í Intersportdeild kvenna í körfuknattleik, 68:56. Keflvíkingar mættu í Reykjavík með vængbrotið lið þar sem vantaði Erlu Þorsteins, Birnu Valgarðs og Kristínu Blöndal, og munar aldeilis um minna. Staðan í leikhléi var 35:25 eftir jafnan leik lengst af, en Alda Leif Jónsdóttir skoraði síðustu 10 stig hálfleiksins og kom ÍS í góða stöðu fyrir þann seinni. Þar náðu ÍS allt upp í 22 stiga forystu, en að Keflavík náði að klóra í bakkann fyrir leikslok.

Alda Leif Jónsdóttir var stigahæst í liði Stúdína og skoraði 27 stig og Stella Rún Kristjánsdóttir kom næst með 21 stig. Alls skoraði ÍS 13 þriggja stiga körfur í leiknum. Í liði Keflavíkur var Anna María Sveinsdóttir stigahæst með 18 stig, þar af 16 í þeim síðari. Bryndís Guðmundsdóttir var næst henni með 13 stig.

Þannig tryggir ÍS sig á toppi deildarinnar þar til eftir áramót, en Keflavík er tveimur stigum á eftir.

Bílakjarninn
Bílakjarninn