Útgefandi: Víkurfréttir ehf . Krossmói 4 . 260 Reykjanesbæ . Sími 421 0000
Ritstjóri: Páll Ketilsson . Netfang: pket@vf.is . GSM: 893 3717
Fréttastjóri Víkurfrétta: Hilmar Bragi Bárðarson . Netfang: hilmar@vf.is . GSM: 898 2222
Fréttastjóri Kylfings: Jón Júlíus Karlsson . Netfang: jjk@vf.is . GSM: 849 0154
Bláa Lónið og Grindavíkurbær bjóða í gönguferð í dag
Grindavíkurbær og Bláa Lónið bjóða í dag kl. 13 upp á menningar- og sögutengda gönguferð samstarfi við leiðsögumenn Reykjaness. Gangan hefst, eins og fyrr segir, kl. 13.00 á bílastæði heilsulindarinnar í Bláa Lóninu og er áætlað að hún taki um 2 og 1/2 klukkustund. Enginn þátttökukostnaður er í gönguna.Gengið verður m.a. um mosagróið Illahraun, framhjá Rauðhól (gígnum sem hraunið kom úr á sögulegum tíma), haldið austur með suðurhlíðum Þorbjarnarfells og inn á Baðsvelli. Þar er ætlunin m.a. að kíkja á þjófaslóðir og hin fornu sel Grindvíkinga. Þá verður gengið yfir að svæði Hitaveitu Suðurnesja og um hið litskrúðuga lónssvæði að lækningalindinni og endað í heilsulind. Í lok göngu verður tilboð, 2 fyrir 1 ofan í lónið.
Reynt verður að hafa ferðina og fræðsluna þannig að börn jafnt sem fullorðnir hafi gagn og gaman af. Góður skófatnaður æskilegur. Allir á eigin ábyrgð
Nýjustu fréttir
- Mannlíf | 07. júní 2011 08:57Reykjanes gönguferðir 2011
- Mannlíf | 04. maí 2010 15:52Nýtt kort um Strandleiðina komið út
- Mannlíf | 22. júlí 2008 11:21Gengið um Skálafell að Háleyjarbungu
- Mannlíf | 21. ágúst 2007 15:26AF STAÐ á Reykjanesið – Sandgerðisvegur, gömul þjóðleið
- Mannlíf | 09. júlí 2007 16:33Gönguferð og helgistund við Prestsvörðu
- Gönguleiðir | 09. apríl 2007 10:25Bláa Lónið og Grindavíkurbær bjóða í gönguferð í dag


