Bygg
Bygg

Fréttir

„Teljum að hinir flokkarnir eigi að líta til okkar í samstarfi“
Frá Grindavik. VF-mynd: Jón Steinar Sæmundsson
Fimmtudagur 19. maí 2022 kl. 14:02

„Teljum að hinir flokkarnir eigi að líta til okkar í samstarfi“

Miðflokkurinn vann stórsigur í bæjarstjórnarkosningunum í Grindavík. Flokkurinn fékk 32,4% atkvæða og þrjá menn kjörna. Talin voru 1623 atkvæði en kjörsókn var 64,1%.

B-Listi Framsóknarflokks 324 atkvæði (20,2%) og einn mann kjörinn. D-Listi Sjálfstæðisflokks 397 atkvæði (24,8%) og tvo menn kjörna. M-listi Miðflokks 519 atkvæði (32,4%) og þrjár menn kjörna. S-listi Samfylkingar 149 atkvæði (9,3%) og engan mann kjörinn. U-listi Raddar unga fólksins 212 atkvæði (13,2%) og einn mann kjörinn.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Auðir seðlar voru tuttugu og ógildir voru tveir.

Víkurfréttir heyrðu í oddvitum Miðflokksins, Framsóknarflokksnis og Raddar unga fólksins eftir kosningarnar.

Miðflokkurinn var ótvíræður sigurvegari

„Þetta kom okkur á óvart. Við höfum unnið alveg gríðarlega vel á kjörtímabilinu og ég fann að það var meðbyr með okkur. Ég gerði mér væntingar um að ná inn öðrum manni og að við yrðum tvö en mig óraði ekki fyrir því að við yrðum þrjú og sigurvegarar kosninganna. Langstærsti flokkurinn,“ segir Didda, Hallfríður Hólmgrímsdóttir, oddviti Miðflokksins í Grindavík. Miðflokkurinn var ótvíræður sigurvegari bæjarstjórnarkosningar í bænum og fékk þrjá bæjarfulltrúa. Sjálfstæðisflokkurinn fékk tvo, Framsóknarflokkurinn einn og Rödd unga fólksins einn.

Eruð þið að fara í meirihlutasamstarf eða eru hin framboðin að raða sér upp á móti ykkur?

„Ég vona nú að það sé einhver misskilningur. Ég sá umræðu um þetta í morgun. Ég ætla nú rétt að vona að fólk eða flokkarnir hér í bæ séu að fara gegn vilja fólksins. Ég trúi því eiginlega ekki, ekki fyrr en að það sé að fullu reynt með meirihlutasamstarf með Miðflokknum. Ég ætla rétt að vona að þetta sé bara stormur í vatnsglasi.“

Eruð þið að ræða við einhverja.

„Já, þetta er á viðkvæmu stigi. Það er hægt að orða það þannig að það séu þreifingar í gangi en ekkert verið fundað formlega. Við teljum samt að hinir flokkarnir eigi að líta til okkar í samstarfi. Ég geri ráð fyrir að menn reyni að ná saman við okkur áður en þeir fara að reyna eitthvað annað. Ég trúi ekki öðru en að það verði niðurstaðan að það fari fram formlegir fundir með okkur áður en þeir fari saman í sæng með hinum.“

Hvað skapaði þennan mikla meðbyr sem þið fenguð?

„Ég held að þetta sé bara traust. Við erum búin að vinna alveg ótrúlega vel á kjörtímabilinu. Ég hef ein verið í bæjarstjórninni frá Miðflokknum og hef sýnt þessu staðfestu. Ég hef staðið í lappirnar og kannski aðeins staðið í meirihlutanum stundum. Ég styð öll góð málefni en þegar mér finnst að einhverjum málaflokki vegið þá stend ég fast í lappirnar og gef ekki tommu eftir. Þá er ég kannski helst að vísa í leigumálin í Víðihlíð sem var mikið réttlætismál. Svo stóð ég þversum í kokinu á þeim í launaumræðunni og svo öll þessi smáu mál. Þetta er bara traust sem fólk ber til okkar, mín og fólksins á listanum.·

Nú hefur stuðningur við Miðflokkinn verið að minnka á landsvísu, þannig að staðan í Grindavík er svolítið á móti straumnum.

„Ég er alltaf á móti straumnum. Við erum sér framboð hérna. Kjósendur eru að kjósa fólkið á listanum. Margir hafa verið að kjósa Miðflokkinn en mikið til var þetta líka bara fólk að kjósa okkur frambjóðendur á listanum.“

Samstarf á breiðum grundvelli og bæjarstjórn starfi án minni- og meirihluta

„Ég er ánægð með að við jukum við fylgi okkar en hefði viljað ná manni með mér. Við háðum heiðarlega kosningabaráttu og tókum ekki þátt í skítkasti af neinu tagi þótt spjótin beindust oft að okkur á óvægin hátt,“ segir Ásrún Helga Kristinsdóttir, oddviti Framsóknarflokks í Grindavík.

„Mér finnst mikilvægt að milli þeirra sem mynda meirihluta ríki gagnkvæmt traust og virðing. Fólk þarf að vera samkvæmt sjálfum sér og samtaka í því að fylgja málum eftir sem það stefndi að í kosningabaráttunni.

Fari það svo að við í Framsókn förum ekki i meirihluta þá hef ég áhyggjur af því að mál sem við lögðum áherslu á og brunnum fyrir en hinir flokkarnir ekki fái ekki vægi.

Við höfum hitt fulltrúa Miðflokksins en náðum ekki saman um myndun meirihluta, hins vegar kom hugmynd frá mínum flokki að við kæmumst að samkomulagi um samstarf á breiðum grundvelli og bæjarstjórn starfi án minni- og meirihluta sérstaklega i ljósi þess að samstarf milli flokka hefur verið gott í Grindavík,“ segir Ásrún Helga.

„Þakklát fyrir að halda okkar manni inni“

„Við erum þakklát fyrir að hafa haldið okkar manni inni og varðandi meirihlutaviðræður þá eru þreifingar í gangi en engar formlegar viðræður byrjaðar,“ segir Helga Dís Jakobsdóttir, oddviti Raddar fólksins í Grindavík, spurð út í úrslit sveitarstjórnarkosninga í Grindavíkurbæ.

Vinna áfram með hag bæjarfélagsins og íbúa að leiðarljósi

„Vissulega var svekkjandi fyrir okkur sjálfstæðismenn í Grindavík að tapa manni, en að því sögðu var almennt gott fólk að bjóða sig fram í sveitarstjórnarkosningunum í bænum okkar,“ segir Birgitta Káradóttir, sem skipar 2. sæti hjá Sjálfstæðisflokknum í bæjarstjórn Grindavíkur.

„Á síðastliðinu kjörtímabili unnu ég, Hjálmar og Guðmundur, vel með öðrum kjörnum fulltrúum ásamt því að grunnvinna var lögð fyrir mörg spennandi verkefni sem verða í vinnslu næstu fjögur árin.

Við Hjálmar munum að sjálfsögðu vinna áfram með hag bæjarfélagsins og íbúa hér að leiðarljósi.

Miðflokksdeild Grindavíkur var óumdeildur sigurvegari kosninganna í Grindavík og þykir okkur því heiðarlegt að staldra aðeins við og sjá hvort flokkurinn geti myndað meirihluta.

Að því sögðu teljum við okkur vel geta myndað annað meirihlutasamstarf og munum taka jákvætt í boð um slíkar viðræður,“ segir Birgitta.