Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

„Hreint og gott vatn er nauðsynleg lífsgæði“
Hilmar Bragi Bárðarson
Hilmar Bragi Bárðarson skrifar
laugardaginn 14. nóvember 2020 kl. 10:21

„Hreint og gott vatn er nauðsynleg lífsgæði“

Sveitarfélagið Vogar hyggst ráðast í virkjun nýs vatnsbóls sveitarfélagsins sem leysir af hólmi núverandi vatnsból. Nýja vatnsbólið er í samræmi við gildandi aðalskipulag sveitarfélagsins, segir í gögnum frá síðasta fundi í bæjarstjórn Sveitarfélagsins Voga.
Sveitarfélagið fól Verkfræðistofunni Verkís að vinna fyrirspurn þá um matsskyldu sem nú er óskað umsagnar um. Það er mat bæjaryfirvalda að framkvæmdin sé þýðingarmikil fyrir framtíðarvatnsöflun fyrir íbúa og atvinnustarfsemi sveitarfélagsins. Eins og fram kemur í skýrslunni verður lögð áhersla á að rask verði sem minnst og að framkvæmdin verði unnin með það að markmiði að umhverfisáhrif verði í lágmarki.

Atvinnu- og nýsköpunarráðuneytið hefur beðið um umsögn frá sveitarfélaginu vegna beiðni Sveitarfélagsins Voga, dags. 24. september síðastliðinn, um heimild til eignarnáms á landi þar sem framtíðarvatnsbólið er fyrirhugað. Í svari sveitarfélagsins til ráðuneytisins vísast um forsögu og nauðsyn eignarnáms til bréfs Landslaga slf. frá 24. september síðastliðinum. Sérstaklega er áréttuð beiðni um að málið hljóti skjóta afgreiðslu eins og kostur er.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Bæjarfulltrúi L-listans óskaði eftir að eftirfarandi væri bókað á fundi bæjarstjórnarinnar:

„Ég vona að lausn verði fundin sem allra fyrst varðandi nýtt vatnsból sveitarfélagsins. Hreint og gott vatn er nauðsynleg lífsgæði og hagur allra að það verði tilbúið til notkunar sem fyrst.“