HSS
HSS

Fréttir

Ýtur og vatn á hraunið
Séð yfir Grindavík, höfnin fremst og Þorbjörn í fjarska. VF-mynd/hilmarbragi.
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
miðvikudaginn 5. febrúar 2020 kl. 15:22

Ýtur og vatn á hraunið

til að verja byggðina í Grindavík og mannvirki í Svartsengi komi til goss

Ef til goss kæmi við Grindavík verður hægt að ýta upp varnargörðum til að stýra hraunflæði. Starfsmenn Verkfræðistofu Suðurnesja hafa undanfarið skoðað hvernig verja megi byggð og önnur mannvirki fyrir hugsanlegu hraunflæði ef til eldgoss kæmi vestan við Þorbjörn. Sú leið sem mönnum finnst vænlegust er að ýta upp varnargörðum með  stórum jarðýtum.

„Þetta yrði útfært þannig að notaðar yrðu sex til átta jarðýtur, af stærstu gerð, sem myndu ýta upp varnargarði eða görðum sem myndu leiða hraunrennslið frá byggð og mikilvægum mannvirkjum,“ segir Brynjólfur Guðmundsson, framkvæmdastjóri Verkfræðistofu Suðurnesja, í samtali við Víkurfréttir.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Magnús Tumi Guðmundsson, jarðeðlisfræðingur hjá Háskóla Íslands, er á sama máli og starfsmenn Verkfræðistofu Suðurnesja. Í viðtali við Víkurfréttir, sem birt var á vf.is síðasta sunnudag, segir hann að reynslan úr Vestmannaeyjum sé sú að hægt sé að hafa áhrif á hægfara hraunrennsli. Hann segir menn hljóta að grípa til aðgerða eins og mögulegt er eins og að nota jarðýtur og dæla vatni.

„Og við veltum þessu fyrir okkur á næstunni, hvað ætti að gera. Ef eitthvað svona gerist þá þarf að nota þau ráð sem til eru en ekki bara horfa á. Ef það væri hægt að vera með fyrirbyggjandi aðgerðir þá á hiklaust að gera það,“ segir Magnús Tumi.

Nánar er fjallað um hugmyndir Verkfræðistofu Suðurnesja á síðu 2 í blaðinu í dag.

https://issuu.com/vikurfrettir/docs/vikurfrettir_06_2020