Ýmislegt sem þarf að vera til staðar í Grindavík fyrir eðlilegt líf
Grindvíkingar fengu 70 íbúðir fyrir jól og fleiri í farvatninu
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, sagði á upplýsingafundi vegna náttúruhamfara við Grindavík sem haldinn var fyrir jól, að áfram sé töluverð óvissa með búsetu í Grindavík næstu vikur með þessa stöðu sem er uppi núna. Þar sagði Katrín einnig að það væru húsnæðismál sem hvíldu hvað þyngst á íbúum Grindavíkur.
Lagt verður fyrir Alþingi þegar það kemur úr jólaleyfi að húsnæðisstuðningur, sem samþykktur hafði verið til þriggja mánaða, verði framlengdur út veturinn.
Leigufélagið Bríet hefur keypt áttatíu íbúðir og af þeim voru sjötíu íbúðir tilbúnar til afhendingar fyrir jól. Afgangurinn, tíu íbúðir, verða tilbúnar á fyrstu dögum nýs árs. Leigufélagið Bjarg hefur fest kaup á níu íbúðum og er reiknað með að þær verði komnar í notkun fyrir áramót.
Katrín sagði að brýn þörf er fyrir sjötíu íbúðaeiningar og þetta mun því mæta þeirri þörf. Hún sagði þetta þó ekki breyta því að töluverðu hópur er í húsnæði sem er óvissa um og unnið verði milli jóla og nýárs í að skoða þau mál.
Fannar Jónasson, bæjarstjóri í Grindavík, sagðist á upplýsingafundinum fagna áformum um að úrræði ríkisvaldsins til stuðnings Grindvíkingum yrðu framlengd fram á vorið.
Fannar sagði að ýmislegt ætti eftir að gera áður en Grindvíkingar fara aftur heim til Grindavíkur, þegar opnað verði á þann möguleika. Nú væri unnið eftir því skipulagi að skólahald standi út skólaárið þar sem börnin eru í skóla í dag og það er víða um land. Það skiptir líka máli að grindvískir kennarar sem eru að kenna þessum börnum geta ekki snúið til baka til Grindavíkur stax.
Það er ýmislegt sem þarf að vera til staðar í Grindavík svo hægt sé að tala um að ástandið sé orðið venjulegt fyrir íbúana að dvelja þar.
Í Grindavík þarf að ljúka vinnu við ýmsa stóra innviði eins og fráveitu og kalt vatn. Einnig er unnið við hitaveitu og fjarskipti. Það gangi allt vel en lítið megi út af bregða svo röskun verði á þessum málum. Veitukerfið er ennþá laskað á einhverjum stöðum en unnið er í öllum kerfum um þessar mundir.
Þá sagði Fannar að Grindavíkurvegur þurfi að vera í góðu lagi. Vetrarþjónusta á vegum til og frá Grindavík þarf að vera í góðu lagi til að tryggja örugga rýmingargetu, komi til hennar.
Þá þarf að girða af sprungur og fylla upp í þær. Sprungur leynast víða. Þá þurfa að vera viðeigandi hættumerkingar.
Fannar sagði að opin svæði og leikvellir þurfa að vera örugg. Þá þarf að vera til staðar þjónusta viðbragðsaðila ef á þarf að halda
Engin þjónusta er til staðar í Grindavík sem stendur. Öll opinber þjónusta er starfrækt utan Grindavíkur og kemur ekki aftur til bæjarins fyrr en öruggt er að vera þar. Þá er önnur þjónusta og verslun mjög takmörkuð í bæjarfélaginu.
Þá kom fram í máli Fannars að ein athöfn hafi farið fram í Grindavíkurkirkju á dögunum. Það var útför sem fram fór í kyrrþey og var fámenn athöfn.
Þá kom fram í máli Fannars að verið er að vinna í tjónamálum alla daga og m.a. verið að undirbúa að ljúka málum þar sem altjón varð. Öryggi bygginga þarf að vera yfirfarið. Það hefur staðið yfir mjög mikil vinna á vegum Náttúruhamfaratryggingar Íslands og Grindavíkurbæjar að meta húsnæði og skemmdir á mannvirkjum.