Bygg
Bygg

Fréttir

Yfirlýsing frá Isavia vegna fréttar Stöðvar 2
Mánudagur 15. október 2012 kl. 20:22

Yfirlýsing frá Isavia vegna fréttar Stöðvar 2

Isavia hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna þess sem fyrirtækið segir vera villandi frétt Stöðvar 2 í kvöld. Í yfirlýsingunni segir:

„Ranghermt er að Flugakademía Keilis þjálfi flugumferðarstjóra og að þörf sé á flugumferðarstjórum á Keflavíkurflugvelli og villandi að mismunun í þjónustu eigi sér stað eftir upphæðum þjónustugjalda.
Isavia rekur flugturn á Keflavíkurflugvelli með flugumferðarstjórn á flugvellinum og aðflugsstjórn að Keflavíkurflugvelli og Reykjavíkurflugvelli. Flugvallarrekstur og flugleiðsöguþjónusta á Keflavíkurflugvelli er fjármögnuð með notendagjöldum og er mönnun í flugturni hagað til samræmis við þarfir greiðandi notenda og samþykkt af Flugmálastjórn Íslands. Á þessum árstíma eru að jafnaði 5 flugumferðarstjórar á dagvakt auk nokkurra dagvinnumanna sem grípa má til í forföllum á rúmhelgum dögum. Verði forföll hjá vakthafandi flugumferðarstjórum eru kallaðir til aukamenn eftir þörfum til þess að annast venjulega áætlunarflugumferð og aðra flugumferð sem greiðir notendagjöld. Lendingargjöld fara eftir hámarksflugtaksþyngd flugvéla en þjónustan er jafnumfangsmikil fyrir allar flugvélar. Kennslu- og æfingarflug nýtur ekki  forgangs á Keflavíkurflugvelli, enda greiða þeir aðilar sem annast kennsluflug engin notendagjöld á flugvellinum og hafa hafnað boði þar um. Ekki er heimilt að nota tekjur af þjónustu við greiðendur þjónustugjalda til niðurgreiðslu fyrir aðra aðila. Þeir njóta á hinn bóginn sömu þjónustu eftir því sem við verður komið, en þó þannig að ekki komi til aukakostnaðar.  

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Kennsla til undirbúningsnáms í flugumferðarstjórn

Flugskóli Íslands og Keilir bjóða kennslu til undirbúnings námi í flugumferðarstjórn hjá Isavia og greiða nemendur sjálfir námið að fullu. Grunnám þetta var áður kennt eftir þörfum á námskeiðum sem haldin voru á vegum fyrirrennara Isavia, Flugstoðum og Flugmálastjórn Íslands. Isavia er eini aðilinn hérlendis sem annast flugumferðaþjónustu og þarfnast að jafnaði einungis 6 – 8 nýnema í flugumferðarstjórn á ári, stundum fleiri og stundum færri eftir atvikum.

Fram til þessa dags hafa 166 nemar hafið undirbúningsnám fyrir flugumferðarstjóranám hjá umræddum flugskólum, 82 hafa lokið náminu en einungis hefur verið þörf fyrir 27 hjá Isavia á árunum 2009 - 2011. 16 – 17 eru nú í undirbúningsnámi en ólíklegt er að Isavia hafi þörf fyrir neina nýnema á yfirstandandi ári.
Isavia hefur til afnota tölvuforrit sem hannað er til þess að velja til náms í flugumferðarstjórn  nemendur sem líklegastir eru til þess að ráða við námið og er almennt notað í Evrópu við val nema í flugumferðarstjórn. Isavia hefur boðið umræddum skólunum að framkvæma prófið þeim að kostnaðarlausu en báðir hafa afþakkað boðið með þeirri skýringu að slíkt myndi takmarka mjög fjölda þeirra sem ella kæmist í undirbúningsnámið. Virðast þeir fremur kjósa að taka inn alla sem hafa hug á náminu þrátt fyrir mjög takmarkaðan fjölda sem kemst til framhaldsnáms og litla sem enga möguleika sem undirbúningsnámið veitir til náms í flugumferðarstjórn í öðrum löndum. Á þetta hefur Isavia bent forráðamönnum Keilis,“ segir í yfirlýsingu Isavia í kvöld.