Bragi Guðmundsson - Báruklöpp
Bragi Guðmundsson - Báruklöpp

Fréttir

Yfirlýsing frá Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
Föstudagur 5. febrúar 2010 kl. 17:30

Yfirlýsing frá Heilbrigðisstofnun Suðurnesja

Á fundi stjórnenda Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja (HSS) með heilbrigðisráðherra í dag var farið ítarlega yfir stöðu HSS og niðurskurð á framlögum til stofnunarinnar á fjárlögum. Á fundinum kom fram að áhrif skertra framlaga á rekstur stofnunarinnar voru ofmetin og niðurskurður á þjónustu verður því ekki jafn mikill og forsvarsmenn HSS töldu óhjákvæmilegan.

Vegna þessa er ljóst að stjórn HSS verður að endurmeta fyrri ákvarðanir og standa vonir til að hægt verði að halda þjónustu við sykursjúka áfram opinni og sama er að segja um sálfélagslegu þjónustuna. Þá verður almenn móttaka lækna um helgar áfram opin.


Starfsfólk og stjórnendur HSS munu hér eftir sem hingað til tryggja íbúum örugga þjónustu. Bráðamóttaka verður opin 24 tíma á sólarhring alla daga ársins áfram.

Optical Studio 15, 18, 20, 22, 25, 27, 29. ágúst 1-6 sept karl
Optical Studio 15, 18, 20, 22, 25, 27, 29. ágúst 1-6 sept karl



Reykjanesbæ, 5. febrúar 2010

Fh. Framkvæmdastjórnar Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja

Sigríður Snæbjörnsdóttir, forstjóri.

Reykjanes Optikk ljósan25
Reykjanes Optikk ljósan25