Bygg
Bygg

Fréttir

Yfirheyrslum FBI yfir keflvískum lögreglumönnum frestað
Föstudagur 11. október 2002 kl. 23:58

Yfirheyrslum FBI yfir keflvískum lögreglumönnum frestað

Yfirheyrslum yfir fimm lögrerglumönnum á vegum bandarísku alríkislögreglunnar (FBI) hefur verið frestað fram í desember. Mennirnir áttu að fara utan á næstu dögum, en því hefur nú verið frestað að sögn Óskars Þórmundssonar, yfirlögregluþjóns á Keflavíkurflugvelli, í samtali við Víkurfréttir. Bandaríska alríkislögreglan (FBI) hafði tilkynnt utanríkisráðuneytinu að hún muni stefna fimm lögreglumönnum við embættið til vitnis fyrir rétti í Bandaríkjunum. Þeir eiga að bera vitni í máli ákæruvaldsins gegn frönskum flugþjóni, Michel Philippe, sem er ákærður fyrir að hafa ritað sprengjuhótun á uppsölupoka og spegil á salerni júmbóþotu breska flugfélagsins Virgin Atlantic.Flugvélinni var lent á Keflavíkurflugvelli eftir að Philippe sagði flugstjóranum að hann hefði séð hótunina á salerninu en flugvélin var þá á leið frá London til Orlando í Bandaríkjunum í janúar sl. Hótunin á pokanum hljóðaði svo: "Bin Laden er bestur, Bandaríkjamenn verða að deyja, það er sprengja um borð, al-Quaeda." Skilaboðin voru á ensku en orðin bin Laden og al-Quaeda voru rituð með frönskum rithætti. Philippe var handtekinn í New York í mars sl. en hefur verið sleppt gegn 250 þúsund dollara tryggingu. Verði hann fundinn sekur á Philippe yfir höfði sér lífstíðarfangelsi, að sögn Morgunblaðsins.. Hann hefur neitað sök og hafa foreldrar hans beðið Jacques Chirac Frakklandsforseta að skerast í leikinn. Réttarhöldin í málinu hefjast 21. október nk. í Orlando.

Að sögn Jóhanns R. Benediktssonar, sýslumanns á Keflavíkurflugvelli, hefur FBI tilkynnt að fimm lögreglumönnum sem unnu að rannsókn málsins verði stefnt til að bera vitni. Utanríkisráðuneytið hefur einnig ákveðið að Jóhann fari með lögreglumönnum utan en ekki er ljóst hvort hann muni bera vitni. Fulltrúi FBI er nú staddur hér á landi og hefur rætt við utanríkisráðuneytið um tilhögun stefnanna.


Lögreglan á Keflavíkurflugvelli sá um vettvangsrannsókn eftir að flugvélin lenti á Keflavíkurflugvelli og er greinilegt að FBI er mikið í mun að afla vitnisburðar íslensku lögreglumannanna.

Eins og fyrr segir fannst hótunin um borð í breskri flugvél en það eru engu að síður Bandaríkjamenn sem ákæra Philippe. Er hann m.a. ákærður fyrir að hafa hótað að nota gereyðingarvopn gegn bandarískum ríkisborgurum en verjandi hans segir að sú ákæra standist ekki þar sem flugvélin hafi verið utan bandarískrar lögsögu þegar hótunin var gerð, segir í Morgunblaðinu.
Bílakjarninn
Bílakjarninn