Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Yfir þúsund sprengjur fundnar á Reykjanesi
Fimmtudagur 4. október 2012 kl. 11:26

Yfir þúsund sprengjur fundnar á Reykjanesi

Á annað þúsund sprengjur og skot hafa fundist við hreinsunarstarf Landhelgisgæslunnar á Reykjanesi síðustu fimm ár. Sigurður Ásgrímsson, deildarstjóri hjá Gæslunni, segir starfið hafa gengið vel og átakinu ljúki senn. Skýrsla um framvinduna er væntanleg innan skamms. Frá þessu er greint í Fréttablaðinu í dag.

„Við erum búnir að gera mikið átak í samstarfi við Kadeco, Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar, um að hreinsa svæðin næst Keflavík, sem voru nýtt sem skotæfingasvæði í stríðinu og eftir það, og það hefur gengið þokkalega vel. Auðvitað er alveg útilokað að lýsa því yfir að svæðið sé orðið fullkomlega hreint, en allavega hefur mikið unnist í þessu,“ segir Sigurður í samtali við Fréttablaðið.

Svæðin sem um ræðir eru Vogaheiði og svæðið í kringum Patterson-flugvöll, en þar stóð bandaríski herinn fyrir skotæfingum allt fram til ársins 1960. Hreinsunarsvæðið er afar víðfeðmt, á Vogaheiði er rætt um fimmtán ferkílómetra og Patterson-svæðið er um tólf ferkílómetrar.

„Þetta eru mikið til fallbyssukúlur, sprengjuvörpusprengjur og svo skot af öllum stærðum,“ segir Sigurður. Hann segir mikið af því sem finnist vera virkar sprengjur sem mikil hætta stafi af.

„Sprengjurnar virkjast við að vera skotið, en tíu til tólf prósent af þeim sem skotið er virka ekki í fyrstu, af einhverri ástæðu. Þannig liggja þær, kannski í allt að 60 ár, bæði ofan jarðar og neðan. Þá er þetta orðið mjög tært, en kúlan er þá í fínu lagi og sprengiefnið líka, og þá er það orðið mjög hættulegt.“

Sigurður segir ástandið nú vera orðið nokkuð gott á svæðunum og ætti ekkert að koma í veg fyrir uppbyggingu, til dæmis á Patterson-svæðinu sem liggur neðan við gamla varnarsvæðið, Ásbrú.

Fréttablaðið í dag.

 

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024