Fréttir

Yfir hundrað starfsmenn byggja kísilver United Silicon
Mánudagur 26. október 2015 kl. 09:50

Yfir hundrað starfsmenn byggja kísilver United Silicon

- framleiðsla mun hefjast í Helguvík í maí 2016. Kostnaður við fyrsta áfanga 13 milljarðar.

„Þetta hefur gengið ágætlega, nokkurn veginn samkvæmt áætlun. Við erum kannski örlítið á eftir en ætlum að vinna það upp. Við stefnum að því að hefja hér framleiðslu í maí næsta vor eins og upphafleg plön gerðu ráð fyrir,“ sagði Magnús Garðarsson, framkvæmdastjóri og aðaleigandi United Silicon fyrirtækisins en það reisir nú kísilver í Helguvík. Á annað hundrað manns starfa nú við framkvæmdir hjá United í Helguvík.


Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Tólf manns starfa hjá móðurfélaginu en starfsmenn hjá undirverktökum töldu rúmlega hundrað í fyrsta skipti í síðustu viku. Vinna við fyrsta áfanga af fjórum hjá United Silicon er í fullum gangi en verksmiðjan verður byggð í fjórum áföngum. Hægt er að framleiða tæp 22 þúsund tonn af kísli á ári með einum ofni. Verið að að reisa miklar byggingar verksmiðjunnar sem munu ná fjörutíu metra upp í loft þær hæstu. Í janúar hefst þjálfun starfsmanna svo að þeir geti tekið til starfa þegar starfræksla kísilversins hefst í maí á næsta ári.

Starfsmenn verða 65 þegar byggingu fyrsta áfanga lýkur en síðan þarf um 50 manns við hvern viðbótar ofn eða áfanga. Kostnaður við byggingaframkvæmdirnar við fyrsta áfanga er áætlaður um 13 milljarðar króna. Magnús segir næsta áfanga fara eftir því hvenær hægt verði að fá raforku fyrir annan ofninn. Það eykur hlut hágæðakísils í framleiðslunni. Hann segir að til þess að geta framleitt sem mest af hágæðakísli fyrir verðmæta markaði þurfi að lágmarki tveggja ofna verksmiðju. Mikill gæðamunur sé á hráefninu og þegar einn ofn sé í rekstri þurfi allt að fara í hann. Hægt sé að flokka hráefni mun betur þegar tveir ofnar séu í verksmiðju og láta besta hráefnið í annan ofninn.

Forsvarsmenn ÍAV sem er aðalverktaki United í þessum framkvæmdum, sögðu við fréttamann að vel hefði gengið að manna verkið hingað til. Mikil vinna væri í boði og það hefði greinilega haft eitthvað að segja. 
Magnús sagði aðspurður að kísill kæmi víða við í daglegu lífi fólks. „Þegar við burstum í okkur tennurnar, þvoum okkur um hárið og þegar við keyrum í vinnuna en það er m.a. kísill í öllum hjólbörðum“.

Mest vaxandi markaður fyrir kísil um þessar mundir væri þó sólarrafhlöður en hann fer einnig mikið í álframleiðslu og í efnaiðnað. Megnið af framleiðslu United hefur verið seld nú þegar til Evrópu, aðallega til Þýskalands og Hollands. Um 85% afurða verksmiðjunnar hafa verið seld til tveggja erlendra viðskiptavina með samningum til langs tíma.