Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Yfir 700 skjálftar frá miðnætti
Skjálftasvæði næturinnar. Mynd af Skjálfta-Lísu Veðurstofu Íslands.
Miðvikudagur 10. mars 2021 kl. 11:02

Yfir 700 skjálftar frá miðnætti

Í nótt mældist skjálfti af stærð M5,1 kl. 03:14 í suðvesturhorni Fagradalsfjalls og fannst hann á Reykjanesskaga, höfuðborgarsvæðinu, austur á Hellu og norður í Búðardal. Annar stór skjálfti varð svo kl. 08:50 í morgun. Hann var M4,6 af stærð og varð 1,6 km suð-suðaustur af Fagradalsfjalli.

Alls hafa um 700 jarðskjálftar mælst frá miðnætti, þar af 27 yfir M3,0 að stærð. Stærstu skjálftar þessa sólarhrings eru þessi upp á M5,1 í nótt og svo M4,6 rétt fyrir kl. 09 í morgun.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Virknin, líkt og í gær, er að mestu bundin við suðurhluta Fagradalsfjalls en nokkrir skjálftar mældust rétt norðaustur af Grindavík í nótt, sá stærri M3,9 kl. 04:35 og við örfáir við Trölladyngju.

Enginn gosórói hefur mælst, né afgerandi breytingar í GPS gögnum.

Í gær mældust um 2900 jarðskjálftar á Reykjanesskaga, sá stærsti M4,0 að stærð kl. 23:01 í gǽrkvöldi. Í gærmorgun uppúr kl. 05 jókst virknin eftir rólegan sólahring þegar að órói greindist í suðurhluta gangsins. Í kjölfarið varð virknin aðallega bundin við suðurhluta Fagradalsfjalls.