Karlakór Kef kertatónleikar
Karlakór Kef kertatónleikar

Fréttir

Yfir 60 ökumenn staðnir að hraðakstri
Þriðjudagur 5. maí 2015 kl. 10:22

Yfir 60 ökumenn staðnir að hraðakstri

Lögreglan á Suðurnesjum hefur staðið rúmlega 60 ökumenn að hraðakstri á undanförnum dögum. Brotin áttu sér stað á Reykjanesbraut og Grindavíkurvegi, en einnig á öðrum akbrautum í umdæminu. Tveir ökumenn, karlmenn um tvítugt, mældust á mestum hraða. Þeir óku báðir á 146 km hraða þar sem hámarkshraði er 90 km á klukkustund. Hraðaksturinn kostar hvorn þeirra 130.000 króna í fjársekt, sviptingu ökuleyfis í einn mánuð og þrjá refsipunkta í ökuferilsskrá.

Einn ökumannanna sem staðnir voru að hraðakstri var að auki á ótryggðri bifreið og voru skráningarnúmer hennar fjarlægð af þeim sökum.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024